Maui - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Maui

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gervihnattamynd af Maui.
Mauí

Maui er önnur stærsta eyjan í Havaí-eyjaklasanum eða 1.883 km2 og 17. stærsta eyja Bandaríkjanna. Íbúar voru 168.000 árið 2020. Ferðaþjónusta er mikilvægasta atvinnugreinin. Hæsti punktur Maui er Haleakalā, (3.055 m).

Árið 2023 urðu miklir skógareldar á eyjunni og gjöreyðilagðist bærinn Lāhainā og létust yfir 100 manns.